Við sögðum frá nýju stangaveiðisvæði við Selfoss fyrr í vor – en svæðið er á austubakka árinnar og nær ca. 600-700 metra uppfyrir brúna við Selfoss. Fyrstu laxarnir á því svæði komu á land nú í dag. Þetta svæði var tekið í gagnið, sem hluti af þeim skrefum að fækka netum og netadögum í Ölfusá. Svæðið er núna að sýna að það getur átt framtíð sem frambærilegt stangveiðisvæði.
Um er ræða 2ja stanga svæði sem byrjar ca 600-700 metra fyrir ofan brúna við Selfoss, og nær niður á tangaroddan þar sem kirkjugarður Selfoss er. Veiðimenn eru hvattir til að fara varlega við veiðar – Ölfusá er mikið vatnsfall og straumþung á köflum og gott að nota flotvesti þegar vaðið er. Aðal veiðisvæðið er þó þar sem áin liðast um grinningar og fiskur gengur um netta ála og stoppar á brotum, nálægt austurbakkanum, á leið upp ána. Gríðarlega mikið af fiski gengur upp með austurbakkanum á þessu svæði, að sögn kunnugra, enda er straumþunginn og boðaföllinn mikil vestan meginn.
Tommi Za, veiðmaður, kíkti á svæðið nú seinni partinn, við annan mann. Tommi var tiltölulega fljótur að finna bletti þar sem laxinn heldur sig, eða stoppar, á leið sinni upp ána. Þegar við heyrðum frá Tomma nú um kvöldmat, þá var hann buinn að setja í 3 laxa og land 2 þeirra. Laxarnir tóku Sunray. Tommi ætlaði að skanna svæðið betur og færa okkur fleiri fréttir.
Veiðireglur: Veitt er með 2 stöngum á dag og eru þær seldar saman í pakka. Hver stöng kostar frá kr. 18.900 til 32.900. Fluga er eina leyfilega agnið og skal öllum laxi sleppt. Fluga fer einkanlega vel á svæðinu fyrir ofan brú og mælt er með léttari tvíhendum eða einhendum með góðri skotlínu. Veiðitíminn er staðlaður: 7-13 og 16-22 og síðan færist seinni vaktinn yfirá 15-21 þegar kemur inn undir lok ágúst. Notkun Björgunarvesta er skylda þegar svæðið er veitt – Umsjónarmaður svæðisins afhendir vestin. Númer hjá umsjónarmanni er 793-0353.
Tommi sleppti að sjálfsögðu löxunum aftur, í samræmi við reglur svæðisins. Heimkynni þessara laxa er að sjálfsögðu ókunn, en þeir geta rennt áfram uppí Sogið, Stóru laxá, Tungufljót eða aðrar ár á svæðinu – þar sem færri net hamla nú förinni frá Ölfusárós og uppúr.
Nokkrir dagar eru núna á kynningartilboði á þessu svæði – Sjá hérna.
Búast má við fínni laxveiði á þessu svæði fram í byrjun ágúst en þá tekur sjóbirtingurinn efalaust völdin – spennandi verður að fylgjast með framhaldinu.





