Syðri Brú er 1 stangar svæði á austurbakka Sogsins. Svæðið geymir einn albesta veiðistaðinn í Soginu, Landaklöppina, sem er efsti staðurinn á austurbakkanum. Seldir eru stakir dagar, frá morgni til kvölds, með hefðbundinni pásu um miðjan daginn.
Við heyrðum af fyrstu löxunum á Syðri Brúarsvæðinu, um mánaðarmótin. Um var að ræða 2ja ára fisk og einnig smálax. Í morgun kíkti svo Gunnar Norðdal á svæðið og var ekki lengi að landa einum smálaxi – sjá mynd. Besti tíminn á þessu svæði er oft þegar kemur inní sumarið, frá því seint í júlí og inní ágúst. Það er gaman að sjá að svæðið er farið að skila löxum núna.