Við heyrðum í morgun í veiðimönnum sem eru við veiðar í Hvannadalsá – þeir voru búnir með 3 vaktir og höfðu landað 14 löxum á 2 stangir. Aldeilis ótrúleg veiði.
Atli Árdal og bróðir hans Gústi, voru við veiðar. Fyrsta vaktin var eh 13. ágúst. Við lok 3ju vaktarinnar þá voru þeir komnir með 14 laxa og nær allir á flugur nr. 14 og 16 – Einnig búnir að missa nokkra lax. Áin er í flottu vatni og fiskar teknir um alla á. Bæði er um að ræða eldri laxa en einnig komu 2 grálúsugir á land. Staðir eins og Árdalsfljót, Árdalsfoss og Stekkjarfoss voru sterkir og með mikið af fiski.
Spennandi verður að fylgjast með framhaldinu í Hvannadalsá en þetta sumar hefur hingað til verið framar vonum.
Hérna má finna laus holl í Hvannadalsá, en þau eru ekki mörg.
Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá síðustu vöktum.


