Veiðileyfi í Hlíðarvatn í selvogi hafa verið í sölu hér á vefnum mörg undanfarin veiðitímabil. Þau veiðileyfi hafa tilheyrt Stangaveiðifélagi Árbliks í Þorlákshöfn og Fluguveiðifélagi Ármanna. Félagsmenn þessara félaga fá tækifæri til að skrá sig fyrst fyrir dögum, en síðan fara lausir dagar í almenna sölu.
Allur maí er uppbókaður en nokkrir júní dagar lausir. Töluvert er laust í júlí, ágúst og sept.