Í dag birti Landssamband veiðifélaga nýjar upplýsingar um veiðitölur í helstu laxveiðiám landsins. Inná þeim lista eru nokkrar af þeim ám sem þessi vefur birtir upplýsingar um.
Miðað við lok dags þann 4. júlí þá trónir Norðurá á toppnum með 352 laxa en Blanda er komin í 243. Báðar þessar ár opnuðu snemma í júní. Af þeim ám sem aðgengilegar eru hér inni á vefnum má nefna að Flókan er komin í 111 laxa, Kjósin er komin í 85 laxa og Leirársveitin er í 51 lax. Í sumum ám, t.d. Kjósinni og Leirársveitinni hefur veðurblíðan haft sín áhrif á veiðina. Ágætt magn af fiski er í báðum ánum en tökur eru grannar og árnar viðkvæmar í birtunni.
Eitt athygliverðasta veiðisvæðið á listanum er sem fyrr Brennan en svæðið er við ármót Þverár og Hvítár í Borgarfirði. Svæðið er 2 stanga og er nú komið í 149 laxa. Besti tíminn er framundan og því allt eins líklegt að veiðin fari yfir þá 501 laxa sem veiddust í fyrra. Myndin að ofan er frá Brennunni.