Veiðitímabilið hófst í gær, 1. apríl. Eitt þeirra svæða sem „opnaði“ er Hólaá. Hérna inni á vefnum má finna leyfi á Úteyjarsvæðið. Þar má veiða bæði í hluta hólaár og einnig í hluta af Laugarvatni. Veiðin í vatninu er oft mjög góð á vorin, ekki síður en í Hólaá sjálfri.

Veðrið í gærmorgun var ágætt – hægviðri og hiti um og yfir frostmarki. Veiðimenn reyndu bæði fyrir sér í vatninu og ánni. Fyrsti urriðinn tók í vatninu strax í öðru kasti – sá næsti tók í kasti númer 5. Veiðin hélt áfram að vera fin, bæði í vatni og ánni, á meðan veiðimenn voru við. Samtals komu á land nærri 30 fiskar, flestir urriðar.

Þegar vorið kemur loksins má reikna með að veiðin verði jafnvel enn betri. Laus veiðileyfi má finna hérna.