Fáskrúð í Dölum er einstaklega falleg, fjölbreytt og skemmtileg laxveiðiá í stórbrotnu umhverfi. Hún á upptök sín á Gaflfellsheiði tugi kílómetra frá sjó og fellur svo til sjávar í Hvammsfjörð um 8 km fyrir norðan Búðardal.
Veiðisvæðið er um 14 km frá Katlafossi til sjávar og þar er að finna 55 merkta veiðistaði, allt frá kröftugum strengjum í fallegar breiður. Þrátt fyrir að Fáskrúð sé á köflum í stórgrýttu gili er hún mjög aðgengileg og fær öllum fjórhjóladrifnum bifreiðum.
Eina leyfilega agnið í Fáskrúð er því fluga og skylt er að sleppa öllum löxum stærri en 69 cm. Leyfilegt er að drepa einn hæng á stöng á vakt.
Veiðihúsið við Fáskrúð er staðsett á jörðinni Ljárskógar, sem liggur að suðurbakka Fáskrúðar. Aðbúnaður í veiðihúsinu er eins og best verður á kosið með rúmum fyrir 6-7 veiðimenn, ríkulega útbúnu eldhúsi, góðri borðstofu og stofu með arni og frábæru útsýni yfir Hvammsfjörð.