Eftir rólega byrjun, bæði í Bíldsfellinu og í Alviðrunni, þá lifnaði vel yfir svæðunum síðustu 10 daga eða svo. Flottir laxar hafa verið að koma á land og meira af laxi en síðustu ár, sést á stöðum eins og Sakkarhólma, Bíldsbreiðunni/Görðunum, Tóftinni og Útfallinu.

Veiðikona, Olivia Buchanan, veiddi 2 vaktir í Bíldsfellinu nú í vikunni. Hún hafði gæt sér við hlið. Á fyrri vaktinni setti hún í 3 laxa. Á Tóftinni og í Sakkarhólma. Tveir þeirra sluppu við háfinn, en einn 90 cm langur hængur leyfði smá myndatöku áður honum var sleppt aftur. Seinni vaktin var einnig góð en þá komu 2 laxar á land. Annar við Sakkarhólma og hinn á Tóftinni.

Veiðimenn sem voru við veiðar á fimmtudaginn, 6. águst, settu í fiska við Sakkarhólma og sáu laxa víða – m.a. á stöðum sem þekktari eru sem bleikjustaðir en laxastaðir – það gefur vonandi góð fyrirheit um framhaldið.

Það eru lausar stangir á dögum í næstu viku – hægt að kaupa stakar stangir, staka daga eða bóka húsið sérstaklega með. Sjá hérna

Þess má geta í gær, 7. ágúst, kom 99 cm lax á land í Kúagili í Alviðrunni. Veiðimaðurinn sá töluvert af nýjum laxi á svæðinu. Sjá mynd.