Það eru margir veiðimenn sem leggja leið sína að Þingvallavatni þessa dagana, enda frábært veiðivatn og náttúran stórbrotin. Margir þeirra sem kíkt hafa í vatnið að undanförnu hafa gert flotta veiði. Sigurður Marcus Guðmundsson kíkti ásamt félögum sínum í vatnið í gærmorgun og veiddi þeir félagar vel.
Í heildina fengu þeir um 20 fallegar bleikjur og að auki misstu þeir all nokkrar. Stærstu kusurnar fengu að fara aftur útí vatnið og einnig þær smæstu. Hér á myndina er sýnishorn af því sem kom á land. Þeir félagar fengu bleikjurnar víða, m.a. á Leirutánni og þar um kring. Helstu flugur sem voru að gefa þeim voru Peacock, Killer, Krókurinn og Pheasant tail.