Vesturdalsá á upptök sín í Arnarvatni og rennur þaðan um 33 km leið til sjávar í Nýpslón í Vopnafirði. Veitt er með 3 stöngum í Vesturdalsá og eina leyfilega agnið er fluga og öllum laxi yfir 65 cm skal sleppt í ánni. Vesturdalsá er „litla“ áin í Vopnafirði en árnar Hofsá og Selá eru bæði þekktari og stærri þó að Vesturdalsáin hafi oft í gegnum árin haft betur þegar litið er til afla pr. stöng. Úr Vesturdalsá koma nokkrir „alvöru“ laxar á hverju sumri, laxar um og yfir 20 pundin. Þessi hér til hliðar kom úr ánni um helgina. Hann mældist 102 cm og eins og sést á myndinni þá er laxinn ansi þéttur og flottur. Veiðimaðurinn heitir Brynjar Viggósson.