Eins og veiðimenn vita þá geymir Minnivallalækur fjöldan allan af stórum urriðum. Á hverju veiðitímabili er nokkrum þeirra landað og sleppt aftur í lækinn. Í þessari viku var erlendur veiðimaður, að nafni Till Beiner, á ferðinni í læknum á vegum anglers.is. Hann veiddi vel, náði nokkrum urriðum á bilinu 38-58 cm en í fyrrakvöld þá setti hann svo í einn af höfðingjum árinnar. Hann var staddur í Stöðvarhyl þegar tröllið tók fluguna hans.
Um leið og fiskurinn tók, fór að snjóa og myrkið skall á. Í rúman hálftíma tókst hann á við fiskinn sem lá rólegur útí miðjum hylnum, fastur fyrir. Þegar kraftar tröllsins fóru að þverra, tók hann nokkrar rokur en var síðan landað hratt og örugglega. Við bakkann var slegið á hann máli og reyndist hann vera rúmir 90 cm. Veiðimaðurinn var einn á ferð en náði þó að stilla upp myndavél og taka nokkrar myndir. Frábær fiskur.
Veiðitímabilinu lýkur nú eftir helgi í Minnivallalæk. Tímabilið er búið að vera gott, um 300 fiskar komnir í bókina og margir þeirra vænir.