Í gær voru tilboð opnuð í útboði Mýrarkvíslar á veiðirétti árinnar fyrir árin 2014, 2015 og 2016. Síðasta sumar var áin friðuð að mestu. Áin var einnig boðin út fyrir um ári síðan en veiðifélagið ákvað þá að taka engu þeirra tilboða sem barst. Skv. útboðsgögnum er áin veidd með að hámarki 3 stöngum og eina leyfilega agnið er fluga.

Nú bárust 2 tilboð. Hærra tilboðið hljóðaði uppá 3,8 m.kr. og barst frá Matthíasi Þór Hákonarsyni sem er einn eigenda Veiðivörur.is. Um lækkun er að ræða frá síðasta samningi. Stjórn Veiðifélags Mýrarkvíslar mun gefa sér tíma til að ákveða næstu skref og ræða við tilboðsgjafa. Eins og áður sagði þá var engu þeirra tilboða sem barst í síðasta útboði tekið og ekki er útilokað að það sama verði uppá teningnum núna.

Hér er hægt að finna upplýsingar um Mýrarkvísl.

[email protected]