Veiðisvæði Steinsmýrarvatna, sem tilheyra Syðri Steinsmýri, voru boðin til leigu í október. Tilboð voru opnuð í útboðinu um helgina. Nokkur tilboð bárust en af þeim voru 3 afgerandi hæst. Af þessum þremur átti SVFR það hæsta. Skúli á Syðri Steinsmýri mun hitta SVFR í vikunni og má segja að all góðar líkur séu á að Steinsmýrarvötn verði í söluskrá SVFR sem kemur út í desember. Hlýtur það að vera kærkomið fyrir stangó, en eins og allir veiðimenn vita þá hefur veiðsvæðum þeirra fækkað mikið í haust og vetur.
Hér eru nánari upplýsingar um Steinsmýrarvötn.