Nú er sá tími sumarsins þegar hvað flestir eru á faraldsfæti og hámark ferðagleðinnar er um aðra helgi. Margir nota tækifærið á ferðalaginu og fara til veiða með allri fjölskyldunni, í einn eða fleiri daga. Það eru ýmsir möguleikar í boði. Bæði lax- og silungsveiði í vötnum og ám og verð veiðileyfa er æði misjafnt. Veiðikortið tryggir aðgengi að fjölda vatna um allt land og það kostar aðeins kr. 6.900. Hægt er að kaupa það hér á veiða.is. Hér að neðan eru smá samantekt á því sem kalla má „laus veiðileyfi“ á næstu dögum, bæði í lax og silung.

Silungsveiðin hefur almennt verið afburðargóð þetta sumarið, bæði vatnaveiðin og veiðin í silungsveiðiánum. Sem dæmi hefur veiðin í Brúará frá því í byrjun júní verið mjög góð og veiðin í Þingvallavatni hefur verið frábær frá því veiðitímabilið hófst.

Veiðileyfi á Suðurlandi: Brúará, kr. 3.300 dagurinn. Hlíðavatn í Selvogi, kr. 10-12. þús fyrir 1 sólarhring með húsi og veiðileyfi fyrir 2 stangir.

Veiðileyfi á Norðurlandi: Svartá í Skagafirði, verð kr. 7.500 fyrir 1 dag.

Þó svo að almennt hafi laxveiðisumarið ekki verið gott, þá eru undantekningar á því. Nú um helgina er stórstreymi og ekki loku fyrir það skotið að sá straumur skili góðum göngum uppí árnar. Það er laust í ýmsar laxveiðiár á næstunni:

Veiðileyfi á Vesturlandi: Norðlingafljót, lausar stangir 26-30. júlí. Hörðudalsá í Dölum, laus holl í ágúst. Brenna í Borgarfirði, laus holl í ágúst. Straumar í Borgarfirði, laus holl í byrjun ágúst. Gufuá, lausir dagar í byrjun ágúst.

Veiðileyfi á Norðurlandi: Lausar stangir á Nessvæðinu í Aðaldal í byrjun ágúst.

Veiðileyfi á Suðurlandi: Örfáar lausar stangir í Ytri Rangá. Lausar stangir í Skógá, kr. 30.000 dagurinn. Lausir dagar í Hallanda um helgina, kr. 15.000 fyrir 2 stangir.

Til viðbótar við ofangreind leyfi þá erum við alltaf reiðubúin að reyna að aðstoða veiðimenn við að finna veiðileyfi á tilteknu svæði eða á tilteknum tíma. Sendið póst á [email protected]

[email protected]