Veiðin í Ytri Rangá hefur verið fremur róleg í sumar og göngur nokkuð hægar. Veiðin hefur þó verið að aukast síðustu daga og nú virðist hún vera að nálgast sitt eðlilega form á þessum árstíma. Í fyrra var veiðin einnig mjög róleg í júlí en þegar kom að mánaðamótum júlí/ágúst þá fór allt í gang. Síðustu dagar hafa verið að gefa 20-30 laxa en gærdagurinn gaf 58 laxar,  1 árs laxa og stærri laxa í bland. Mikið líf var á flestum svæðum og misstu veiðimenn einnig mikið af laxi. Það voru ekki margir dagar í Ytri í júlí þar sem áin var veidd með öllum stöngum sem einnig hefur áhrif á veiðitölur árinnar. Framundan er besti tíminn í ánni og spennandi að sjá hvort að áin sýni ekki sitt rétt andlit á þeim tíma.

Það er nokkrar lausar stangir á næstu dögum í Ytri, þær má sjá hérna.

 

[email protected]