Veiðin í Búðardalsá er búin að vera fín nú í sumar. Mikið af fiski gekk snemma í ána en mikið vatn hafði áhrif á veiðina framan af sumri. Síðasta holl sem lauk veiðum í ánni var með 20 laxa og missti einnig marga. Aðilar sem veitt hafa í Búðardalsá í mörg ár, eru nú við veiðar og þeir segjast sjaldan hafa séð jafn mikið af laxi í ánni. Það sem jákvætt er einnig er að fiskurinn hefur dreift sér vel undanfarna daga, þó svo að hann sé einnig í bunkum víða í ánni. Laxar hafa veiðst allt upp undir efsta veiðistað. Nú eru á bilinu 140-150 laxar komnir á land í ánni en veitt er bæði á flugu og maðk fram til 1. september en eftir það má eingöngu veiða á flugu.
Það eru 2 september holl laus í Búðardalsá. Þau má sjá hérna.