Laxveiðin er aldeilis að detta í gírinn – árnar opna hver af annarri og það er að veiðast vel. Haffjarðará opnaði í fyrradag með um 12 löxum, veiðin í Þverá er mjög góð og mikið af fiski að veiðast og sjást. Eftir vatnavexti síðustu daga í Norðurá, þá er veiðin að detta í gang aftur og er smálöxunum að fjölga í aflanum, sem er jákvætt. Næstu daga opna svo fjölmargar ár, meðal annars Ytri Rangá.

 

Laxveiðileyfi næstu daga:

Nú á næstunni eigum við lausa daga meðal annars í Ytri Ranga í lok júní. Á Munaðarnessvæðinu í Norðurá, m.a. á sunnudaginn. Í Gufuá 22-24. júní. Laugardalsá í næstu viku. Hér má sjá þessa daga en einnig er hægt að senda póst á info at veida.is

Hér að ofan má sjá Jóhannes Hinriksson með flottan 91 cm hæng úr Blöndu sem hann náði í gær, 18. júní.

info at veida.is