Það má með sanni segja að þessa dagana sé mokveiði í Ytri Rangá. Sem dæmi um það þá komu yfir 50 laxar á land á fyrstu 3 tímunum í gærmorgun, 29. júlí. Gríðarlega góðar göngur eru uppí ána og eru mikið af laxi á öllum svæðum. Á svæði 4 er m.a. Stallmýrarfljótið og Árbæjarbreiða full af laxi. Á svæði 3 er laxinn byrjaður að bunka sig uppá á Tjarnarbreiðunni og svo er að sjálfsögðu gríðarlega mikið af laxi frá Ægissíðufossi og niður úr. Sjá myndir hér að neðan frá því í gær og fyrradag.
Það eru 3 lausar stangir um helgina í Ytri Rangá fyrir þá sem vilja skella sér í ána – sjá hér.
Ytri er komin í yfir 1.700 laxa og hver dagur nú um stundir er að gefa um og yfir 100 laxa og besti tíminn framundan.
{gallery}mok{/gallery}