Laxá í Skefilsstaðahreppi er einnig kölluð Laxá í Laxárdal eða Laxá á Skaga. Laxá er 2 stanga laxveiðiá sem rennur til sjávar í Sævarlandsvík við vestanverðan Skagafjörð. Áin hefur verið í uppbyggingarfasa síðustu árin eftir að stofn hennar var næstum horfinn í lok 10. áratugarins. Áin var friðuð í nokkur ár í upphafi aldarinnar en síðustu sumur hefur veiðin farið af stað aftur, þó með takmörkunum. Einungis er veitt um 50 daga á ári og hámarksveiði á dag er 5 laxar á stöng. Halda má einum hæng sem er undir 70 cm. Veiðin síðustu sumur hefur verið mjög góð og sem dæmi um það þá voru um 200 laxar bókfærðir sumarið 2015, á þeim 50 dögum sem veitt var í ánni. Síðasta sumar var veiðin aðeins minni.
Laxá er skipt í 2 veiðisvæði og skipta stangirnar um svæði á miðjum degi. Seldir eru stakir dagar, frá morgni til kvölds. Einingis er veitt á flugu í ánni.