Veiðileyfi í Galtalæk

Nú eru veiðileyfi í Galtalæk komin inná veiða.is. Galtalækur er góð 2ja stanga urriðaá sem rennur saman við Ytri Rangá vel fyrir ofan laxasvæði Ytri. Oft veiðist mjög vel í Galtalæk en veiðisvæðið er viðkvæmt og því mikilvægt að nálgast það með gætni. Í Galtalæk má finna mjög stóra urriða og einnig að sjálfsögðu marga smærri. Öllum urriða skal sleppt aftur og handleika skal fiskinn af gætni og varast að snerta með berum höndum.

Stangirnar 2 eru ætíð seldar saman í pakka og kostar sá pakki kr. 18.900. Hér má sjá lausa daga í Galtalæk.