Eftir frábæra byrjun á veiðitímabilinu í Vatnamótunum þá kom tímabil þar sem enginn var við veiðar á svæðinu. Í gær tóku veiðimenn svo upp þráðinn aftur og komu þá 50 fiskar á land, sá stærsti var rúmlega 80 cm langur. Mikið var einnig af vænum geldfiski, 2-4 punda. Eins og þeir vita sem hafa stundað Vatnamótin, þá getur veiðin haldist góð vel fram yfir næstu mánaðamót. Birtingurinn er líklega enn á leiðinni niður vatnakerfið fyrir ofan Vatnmótin.
Hér inni á veiða.is má finna 2 laus holl í kringum 20. apríl og önnur 2 holl í byrjun maí. Sjá hér.