Veiði hófst í Straumum í Borgarfirði fyrir rúmri viku síðan. Straumarnir eru þar sem Hvítá og Norðurá renna saman. Veitt er á 2 stangir í Straumunum og er eina leyfilega agnið í júní og júlí, fluga. Í ágúst og fram í September má einnig veiða á spún á svæðinu.

Mikið af fiski gengur á venjulegu sumri um svæðið og eru Straumarnir oft með eina hæstu meðalveiði á hvern stangardag. Veiðin þetta sumarið hefur farið rólega af stað og virðist laxinn ganga hratt í gegnum svæðið. Þó hafa nokkrir laxar komið á land og veiðimenn hafa misst nokkra einnig. Þessi smálax sem Garðar Newman heldur á, kom á land nú síðdegis – tók hann rauða frances keilutúpu. Smálaxinn virðist fremur snemma á ferðinni þetta sumarið og vonandi veit það á gott fyrir framhaldið.

Örlítið er laust í Straumunum í sumar, eins og sjá mér hér.