Straumar og Brennan í Borgarfirði eru 2 af vinsælli og betri laxveiðisvæðunum á vesturlandi. Á venjulegu sumri fer gríðarlega mikið af fiski um svæðin, bæði lax og birtingur. Veitt er með 2 og 3 stöngum á svæðunum og leyfilegt agn er fluga í júní og júlí en í ágúst bætist spúnninn við. Veitt er inn í byrjun september í Straumunum en til loka sept í Brennunni. Fín veiðihús fylgja leyfunum á þessum svæðum.
Nú eru laus veiðileyfi á bæði þessi svæði, fyrir sumarið 2024, komin hingað inn á vefinn í sölu. Hérna má finna lausa daga í Brennunni og hérna má finna lausa daga í Straumunum.
Má m.a. benda á að opnunarholl Brennunnar er laust.
Fyrir nánari Upplýsingar, þá má einnig senda tölvupóst á [email protected]