Veiði hófst í Brúará á suðurlandi í dag, 1. apríl. Vignir Arnarson og félagar opnuðu Spóastaðasvæðið, eins og oft áður. Veðurguðirnir voru tiltölulega rólegir þegar veiðimenn mættu niður á bakka í morgun, en fljótlega eftir það, þá ærðust þeir og létu öllum illum látum. Strekkingsvindur, frost og svo snjóél eftir hádegi. Þessi læti komu s.s. ekki í veg fyrir að fiskur kæmi á land – fyrsta bleikjan lét sjá sig milli kl. 9 og 10.
Við vonum að vorið fari nú að láta sjá sig fljótlega – það er komið nóg af þessum harða vetri.


