Gufuá – Rúmlega 70 laxar komnir í bókina

Veiðin í Gufuá hefur almennt gengið vel í sumar. Rúmlega 70 laxar eru nú skráðir í veiðibókina, sem er góð veiði á 2 stangir á rétt um 30 dögum. Vatnsstaðan í ánni hefur verið misjöfn. Um síðustu mánaðamót var vatnsstaðan mjög góð og þá veiddist lax útum alla á. Fyrir ofan þjóðveg voru veiðimenn að

2018-07-23T14:20:29+00:0023. júlí 2018|Fréttir|

Laxá í Aðaldal – Laxárfélagssvæðið- lausar stangir

Stórlaxar eru að veiðast nánast uppá hvern einasta dag núna, í Laxá í Aðaldal. All margir vel yfir 100 cm hafa veiðst. Þar á meðal þessi 106 cm langi hængur sem veiddist í gærkvöldi á Spegilflúðinni á svæði 3 tók hann fluguna Wolfowitz. Við eigum nokkrar stangir lausar á Laxamýrarsvæðinu í byrjun ágúst. Á tveimur dögum

2018-07-23T08:58:20+00:0023. júlí 2018|Fréttir|

Hvolsá og Staðarhólsá – Veiðifréttir

Veiðin í Hvolsá og Staðarhólsá hefur farið vel af stað í sumar. Opnunarhollið, 1. júlí, hitti strax á laxa og einnig var bleikjan mætt snemma. Síðustu 2 holl hafa einnig verið að veiða vel. Siðasta holl var með 13 laxa og 12 bleikjur og hollið þar á undan var með 10 laxa og slatta af

2018-07-17T14:52:04+00:0017. júlí 2018|Fréttir|

Fremri Laxá – laus holl

Fremri Laxá er ein albesta urriðaá landsins og á hverju sumri veiðast amk. 3.000-5.000 urriðar ásamt nokkrum tugum laxa. Veiðin í sumar hefur verið mjög góð og margir vænir urriðar komið á land, í bland við þá smærri.  Við Fremri Laxá hafa margir fluguveiðimenn og konur, stigið sín fyrstu skref og veitt sína fyrstu fiska.

2018-07-16T23:42:39+00:0016. júlí 2018|Fréttir|

Ytri Rangá – Forfallastöng 13-16. júlí

Við vorum að fá til okkar 2 forfallastangir í Ytri Rangá, 13-16. júlí. Afsláttur er gefinn af stangarverði og hægt er að sleppa við gistiskyldu. Fín veiði undanfarið og sterkar göngur uppí ána. Stórstreymi er þá daga sem þessar forfallastangir veiða ána. Sjá hér.

2018-07-12T07:42:13+00:0012. júlí 2018|Fréttir|

Norðurá, Fjallið – Holl á tilboði

Veiðin í Norðurá hefur verið góð að undanförnu. Síðustu holl hafa verið með á bilinu 110 - 120 laxa sem er stórfín veiði. Það eru góðar og stöðugar göngur af nýjum fiski uppí Norðurá núna, vatnsstaðan er góð og framhaldið lítur vel út. Nú er fiskur farinn að ganga fram á dal, upp á veiðisvæði

2018-07-11T23:07:26+00:0011. júlí 2018|Fréttir|

Sogið – góðar göngur – lausir daga á Syðri Brú

Undanfarna daga hafa borist fréttir af fínni veiði í Soginu. Hér inni á veiða.is má finna veiðileyfi á Syðri Brúar svæðið í Soginu. Fyrsti laxinn veiddist á því svæði 24. júní og síðan þá hafa fleiri laxar veiðst. Syðri Brú er af mörgum talið besta laxveiðisvæðið í Soginu. Það eru lausir dagar framundan á Syðri

2018-07-08T23:42:10+00:008. júlí 2018|Fréttir|

Svartá í Skagafirði komin í sölu

Svartá í Skagafirði er nú komin aftur í sölu á veiða.is en Svartá er mjög góð 4ra stanga urriðaá. Eina leyfilega agnið er Fluga. Síðustu árin hefur verið markvisst unnið að uppbygging Svartár og hefur liður í þeirri uppbyggingu verið að öllum urriða sem veiðist, er sleppt aftur. Veiðimenn sem sóttu Svartá heim í

2018-07-01T08:22:02+00:001. júlí 2018|Fréttir|

Hraun í Ölfusi komið í sölu á veiða.is – Sjóbirtingsveiði

Jörðin Hraun (Hraunstorfan) er staðsett vestan Ölfusárósa í Sveitarfélaginu Ölfusi. Stangveiði hefur lengi verið stunduð á Hrauni. Veiðin er oft ævintýralega góð á svæðinu, bæði er það sjóbirtingur og bleikja sem tekur agn veiðimanna. Nú geta veiðimenn nálgast veiðileyfi á veiðisvæði Hrauns, inni á veiða.is Verð veiðileyfa er mjög hóflegt, að kr. 2.500. Seldar eru

2018-06-27T20:32:32+00:0027. júní 2018|Fréttir|
Go to Top