Stórlaxar eru að veiðast nánast uppá hvern einasta dag núna, í Laxá í Aðaldal. All margir vel yfir 100 cm hafa veiðst. Þar á meðal þessi 106 cm langi hængur sem veiddist í gærkvöldi á Spegilflúðinni á svæði 3 tók hann fluguna Wolfowitz.

Við eigum nokkrar stangir lausar á Laxamýrarsvæðinu í byrjun ágúst. Á tveimur dögum veiða menn allt Laxamýrarsvæðið, þar á meðal Æðarfossana. Frábært tækifæri til að reyna að komast í 20 punda klúbbinn. Hérna má sjá lausa daga og verð.