Veiðin í Hvolsá og Staðarhólsá hefur farið vel af stað í sumar. Opnunarhollið, 1. júlí, hitti strax á laxa og einnig var bleikjan mætt snemma. Síðustu 2 holl hafa einnig verið að veiða vel. Siðasta holl var með 13 laxa og 12 bleikjur og hollið þar á undan var með 10 laxa og slatta af bleikju. Síðustu daga var stórstreymi og virðist sem mikið af laxinum hafi gengið beint uppí árnar, og einum hylnum voru í morgun amk. 20-25 laxar.

Hvolsá og Staðarhólsá er vel bókuð í sumar og næstu lausu holl eru í September. Við hvetjum alla sem vilja tryggja sér daga fyrir næsta sumar, að hafa samband. Veitt er á 4 stangir í Hvolsá og Staðarhólsá og er Leyfilegt að veiða á flugu og maðk. Mjög gott hús fylgir leyfunum og er gistirými fyrir allt að 10 manns með góðu móti. Umgengi í húsinu hefur verið mjög góð í sumar og þökkum við veiðimönnum fyrir það.