Laxá á Refasveit – ágæt veiði
Laxá á Refasveit er 3ja stanga laxveiðiá í Laxárdal. Áin fellur til sjávar norðan við Blönduós. Veitt er með flugu og maðk í Laxá. Veiðin það sem af er sumri í Refasveitinni er búin að vera ágæt. Nú eru rétt um 110 laxar komnir á land í ánni sem er fínt á þessum tíma sumars.