Veiðin í Skógá er í hefðbundnum upptakti. Skógá er síðsumarsá. Síðast liðin helgi skilaði samtals 13 lönduðum löxum og um 10 laxar láku af, eftir lengri og styttri bardaga.

Veiðisvæðin sem voru að gefa voru ármótin við Kvernu, veiðistaðir þar fyrir neðan og hliðaráin Kverna sjálf – einnig hittu menn á lax í göngu víðsvegar við ána.

Það eru lausar stangir bæði nú í vikunni og einnig um næstu helgi – við minnum á að núna er hægt að gista inni á Skógum, – engin þörf á að bruna í bæinn og stytta veiðitímann þess vegna.

Myndin hér meðfylgjandi er af þeim Kolbeini Ágúst og Degi Nóa – þeir lönduðu 5 löxum um helgina og misstu nokkra.