Veiðin á sjóbirtingsslóðum hefur almennt gengið vel að undanförnu. Vænir fiskar hafa komið á land í bland við þá smærri. Sem dæmi hafa 14-15 punda fiskar verið að veiðast í Eldvatni og í Laxá og Brúará eru stærstu fiskarnir í kringum 10 pundin. Ein besta sjóbirtingsá á suðurlandi, Tungufljót í Skaftafellssýslu, er að skipta um leigutaka þessa dagana. Við heyrðum frá aðilum sem voru í ánni nú í vikunni og þeir lentu nú aldeilis í moki.
Einungis ein stöng var seld í þessu holli sem þeir voru í og gátu þeir því valið sér hylji að vild. Eins og menn þekkja, sem veitt hafa í Tungufljótinu, þá gefur Syðri-hólmi stóran hluta veiðinnar á þessum tíma. Svo var einnig nú. Þessa tvo daga sem þeir voru við veiðar náðu þeir rúmlega 20 fiskum og þar af var einn 15 punda og annar 17 punda. Alla fiskana nema tvo fengu þeir við Syðri-hólma. Um kl. 12 á hádegi síðasta daginn, settu þeir svo í einn af þeim stóru í Tungufljóti. Takan var lík því að veiðimaðurinn hefði fest í botni. Hann byrjaði að reyna að losa agnið en þá fór allt af stað. Fiskurinn straujaði fram og aftur, stökk nokkrum sinnum en eftir dágóðan tíma sagði hann bless. „Ekki undir 20 pundum“ sögðu þeir félagar. Þessi 17 punda virkaði frekar lítill í samanburðinum. Þetta verður líklega ógleymanleg veiðiferð fyrir þá félaga.
Ritstjóri veiða.is kannast vel við þá tilfinningu/aðstæður að missa stóran birting við Syðri-hólma. Það var líklega fyrir einum 8 árum síðan. Klukkan var rúmlega 12 á hádegi síðari morguninn þegar risa birtingur tók hjá veiðifélaganum. Við vorum staddir undir háum bakka með trjágreinar allt í kringum okkur sem einnig náðu úti í ána. Birtingurinn hegðaði sér fyrst eins og sá sem valdið hefur en eftir um 20 mínútna baráttu var komið að því að landa. Var þá úr vöndu að ráða hvort nota ætti háfinn eða reyna að sporðtaka fiskinn. Í löndunarfátinu festist línan í einni af trjágreinunum í ánni og fiskurinn var farinn.