Í dag voru tilboð opnuð í útboði á veiðirétti í Víðidalsá og Fitjá. Alls bárust sjö tilboð í ána. Í samtali við veiða.is sagði Björn Magnússon formaður veiðifélagsins að hæsta tilboðið hefði komið frá Jóhanni Rafnsyni, f.h. óstofnaðs félags. Tilboðið hljóðaði uppá 65,8 milljónir á ári. Samningar við fyrrverandi leigutaka hljóðuðu uppá um 70 milljónir fyrir þetta ár, þó einhverjar lækkanir hafi komið til vegna aðstæðna. Aðrir sem buðu í árnar voru m.a. Hreggnasi og Rafn Alfreðsson leigutaki Miðfjarðarár. Tilboð þeirra voru á bilinu 50-60 milljónir króna.
Veiðifélagið hefur ákveðið að ganga til viðræðna við Jóhann og eru allar líkur á að við hann verði samið, nema eitthvað óvænt komi upp. Jóhann Rafnsson er vel kunnugur í Víðidalnum en hann hefur starfað sem leiðsögumaður við ána í mörg undanfarin ár.