Galtalækur og Minnivallalækur eru nettar urriðaár á suðurlandi, rétt norðan við Hellu. Svæðin eru þekkt fyrir stóra staðbundna urriða sem eiga þar heima. Lækirnir eru viðkvæmir og veiðimenn þurfa að nálgast þá með gætni, því urriðinn er var um sig og getur verið kenjóttur.
Nú á dögunum birtist skemmtileg frásögn/viðtal við þá Aron Jarl og Jóhann Frey Guðmundsson í Sporðaköstum. Þar sögðu þeir frá frábærum degi í Galtalæk og Minnivallalæk. Þeir veiddu bæði marga urriða og nokkra mjög væna á þessum degi, sem lesa má um hérna.
Galtalækur: Fyrir þá sem vilja skella sér í veiði í Galtalæk, þá má finna veiðileyfin hérna – stakir dagar og veitt frá 9-19. 2 stangir seldar saman í pakka.
Minnivallalækur: Hérna má finna laus holl í Minnivallalæk. Yfirleitt 4 stangir seldar saman í pakka, 2-3 dagar í senn. Þess má geta að helgin framundan er laus, 11-13. júní.
