Veiðitímabilið hófst í Svartá í Skagafirði nú í vikunni. Svartá er urriðaá sem er fyrir ofan Húseyjarkvisl – Reykjarfoss skilur árnar að. Veitt er á 4 stangir í Svartá og er fluga eina leyfilega agnið. Svartá er ekki þekkt fyrir magn veiði, heldur fyrst og fremst fyrir stóru urriðana sem þar má finna.
Veiðimennirnir sem hófu tímabilið nú í júní settu í nokkra væna fiska á fyrsta veiðidegi. Þeir stærstu sem komu á land voru um 55 cm langir. Mest líf var á veiðisvæðinu við Sölvanes, eins og oft er á vorin og síðsumars. Á degi 2 bar það hæst að einn alvöru dreki kom á land – 68 cm urriði sem veiddist uppí Gljúfri. Hér á myndinni er Gilbert Jonsson. Það má vart á milli sjá, hvort Gilbert eða urriðinn hafi verið þreyttari eftir bardagann.
Hér má finna lausa daga í Svartá í sumar – stangardagurinn er á kr. 13.000