Veiðin í Gufuá fór rólega af stað fyrir helgina, kannski vegna þess að veiðimenn eru ekki Vanir að Gufuá sé í svo góðu vatni eins og hún er núna. Yfirleitt á þessum tíma, þá er veiðin mest neðst í ánni, enda yfirleitt miklu minna vatn í ánni. Í dag voru Vanir Gufuár veiðimenn á ferð og veiddu þeir mjög vel. Gulli Fjeldsted of fjölskylda voru þar á ferð. Í vatnavöxtunum undanfarna daga hefur laxinn, sem yfirleitt heldur sig neðarlega í ánni á þessum tíma, straujað upp ána og fundu veiðimenn lax víða á svæðinu fyrir ofan þjóðveg 1, á veiðistöðum nr. 22 – 37.
Samtals lönduðu þau 8 löxum og misstu fjölmarga aðra. Sáu þau fiska víða. Það er um að gera fyrir veiðimenn sem verða á ferðinni á næstunni, að vera dugleg að leita – ef vatns heldst gott, má reikna með laxi mjög víða. Framundan eru stórstreymisdagar sem ættu að skila enn meira af laxi uppí ána.
Mynd: Ungur veiðimaður, Ísólfur fjeldsted


