Fyrsti veiðidagur tímabilsins í Hlíðarvatni í Selvogi var 1. maí. Ágætis veiði hefur verið flesta daga frá opnun og flottar bleikjur veiðst í bland við þessar týpísku ca. 1-1,5 punda bleikjur. Við heyrðum af 2 veiðimönnum sem voru við vatnið í gær, í Árblikshúsinu. Þeir lönduðu 16 bleikjum og var sú stærsta rétt um 60 cm löng og svo voru nokkrar á bilinu 45-50 cm. Flottir fiskar.
Við heyrðum svo í morgun í veiðimanni sem staddur var við veiðistaðinn „Gömluvör“ – stafa logn, sól og vor í lofti. Hann lenti í Bingói strax á fyrstu klukkustundinni eftir að hann mætti á svæðið – hann landaði ca. 12 fínum bleikjum og sagði að hann hafi fengið töku í nánast hverju kasti. Hann veiddi mjög djúpt og dró inn löturhægt. Flestar bleikjurnar tóku peacock nr 14 og 16 en nokkrar tóku krókinn í sömu stærð.
** Við heyrðum í þessum sama veiðimanni nú síðdegis þegar hann var kominn heim. Dagurinn skilaði yfir 30 bleikjum á land. Frábær dagur.
Flott byrjun í vatninu og veit á gott fyrir komandi vikur. Það eru nokkrar stangir lausar þegar kemur inní sumarið