Silungasvæðið í Ásgarði í Soginu er þekkt fyrir mjög góða bleikjuveiði. Á vorin og fram til 20. júní, þá nær silungasvæðið einnig yfir laxasvæðið – þá er veitt á 3 stöngum á svæðinu og eru þeir seldar stakar eða í pakka. Frá 20. júní þá er veitt á hefðbundu silungasvæði og þá eru 2 stangir seldar saman í pakka á svæðið. Fluga er eina leyfilega agnið.

Veiðin fór rólega af stað nú í vor, enda var apríl fremur kaldur og ís og krapi á Soginu vel inn undir miðjan apríl. Síðustu daga hefur verið að vora á svæðinu og þá er ekki sökum að spyrja, bleikjan fer á stjá og þá er gaman að vera á Ásgarðssvæðinu. Veiðimenn sem voru á svæðinu í fyrradag, lönduðu um 30 bleikjum og urriðum á nokkrum klst og veiðimenn sem voru við veiðar í gær, veiddu einnig vel. Bleikjurnar í Soginu eru margar í yfirstærðum, eins og sjá má á myndunum hér að neðan.

Næstu dag spáir fínu veiðiveðri á suðurlandi – yfirleitt hægviðri og hiti °4-7. Það eru lausar stangir á Ásgarðssvæðinu. Verðið á stöngina á dag er kr. 10.000.

Sjá lausa daga hérna.