Fín veiði hefur verið á Uteyjarsvæðinu í Hólaá að undanförnu. Töluvert af bleikju er komin niður í á, þó enn vanti mikið uppá að svæðið sé teppalagt af bleikju, eins og iðulega gerist þegar kemur inní sumarið. Þessi veiðimaður hér á myndinni náði um 25 bleikjum og þessum flotta urriða í gær, 3. júní – bæði í Hólaá og í Laugarvatni.
Framundan er besti tíminn á Úteyjarsvæðinu en síðari hluti júní og allur júlí er yfirleitt besti tíminn. Laugarvatn hefur verið að gefa fína veiði, bæði í bleikju og urriða. Nú fyrr í vikunni komu 2 alvöru urriðar á land, bæði í Hólaá og í Laugarvatni, en þeir voru á bilinu 6-7 pund.
Verð á stangardaginn er kr. 6.000 á Uteyjarsvæðið. Hér má finna lausa daga.