Nú höfum við hafið sölu veiðileyfa í Hvannadalsá, sumarið 2020. Veitt er með 2 stöngum í Hvannadalsá og er fluga eina leyfilega agnið. Seldir eru 2-3 dagar í senn og er verði veiðileyfa stillt í hóf. Hérna má finna lausa daga í Hvannadalsá.
.
Hvannadalsá er falleg laxveiðiá við Ísafjarðardjúp með fjölbreytt úrval veiðistaða. Hún rennur um Hvannadal og til sjávar á Langadalsströnd. Áin er um 260 km frá Reykjavik. Hvannadalsá er ein 3ja laxveiðiáa við Ísafjarðarðardjúp og er oft kölluð perlan í Djúpinu. Hún er systurá Langadalsár, enda hafa þær sameiginlegan Ós. Veiðisvæði Hvannadalsár er fremur stutt upp að Stekkjarfossi en áin er mun vatnsmeiri og straumþyngri en Langadalsá. Veiðisvæðið er um 7 km langt.