Veiðin í Hvolsá og Staðarhólsá var með miklum ágætum í sumar. Laxinn mætti snemma á svæðið og einnig bleikjan. Mest var veiðin framan af neðst á veiðisvæðinu, í lóninu, en einnig gekk nokkuð af laxi snemma í júlí uppí árnar. Þegar fór svo að rigna, gekk mest af laxinum uppí báðar árnar og dreifði sér þar í fjölmarga hylji. Lokatölur sem skráðar voru í veiðibækurnar hljóðuðu uppá 245 laxa og um 200 bleikjur. Veiðin hefði getað verið mun meiri í sumar, en nokkuð var um laus holl á mjög góðum tíma í júlí og ágúst – einnig sögðu veiðimenn sem voru við veiðar í lok tímabilisins, í September, að mikið af laxi væri í ánum.

Veitt er á bæði maðk og flugu í Hvolsá og Staðarhólsá. Leyfðar eru 4 stangir. Flest hollin eru seld í einum pakka, 4 stangir saman í 2 daga, en samt buðum við uppá að skipta hollunum í 2+2 stangir, bæði í upphafi tímabils og í September. Mæltist það vel fyrir.

Nú erum við farin að taka við bókunum fyrir næsta sumar fyrir Hvolsá og Staðarhólsá. Við hverjum þá sem voru með holl þar í sumar, og vilja vera næsta sumar, að hafa strax samband til að tryggja sér daga. Fljótlega í nóvember skellum við dögunum á vefinn hjá okkur.