Nú er veiðitímabilið alveg að vera búið, þetta árið, en samt eru nokkrir dagar eftir. Hérna inni á veiða.is má finna lausa daga á nokkrum svæðum og teljum við þau upp hér að neðan:

  • Tungufljót í Skaftártungu – Eitt holl laust í þessa frábæru sjóbirtingsá.
  • Ytri Rangá – Frá næsta þriðjudegi, 10. október, eru lausar stangir á hverju degi út tímabilið en síðasti formlegi veiðidagurinn í Ytri Rangá er 20. október. Stangardagurinn er á kr. 30.000
  • Hólsá, Borgarsvæðið – Síðasti veiðidagurinn á Borgarvæðinu er 19. október. Seldar eru 2 stangir í pakka og kosta þær saman kr. 30.000, s.s. stangardagurinn á kr. 15.000.
  • Laxá og Brúará – Sjóbirtingsveiði á Suðurlandi. 2 stangir eru seldar saman í pakka og kostar sá pakki kr. 45.000 eða kr. 22.500 stangardagurinn.

Endilega að nýta þá daga sem eftir eru – svo taka við 5 „þurrir“ mánuðir.