Hérna má finna veiðileyfin inná Jöklu I og Jöklu II í sumar. Fyrir Jöklu I erum við með helgarholl í byrjun júlí á stórstreymistíma, 4 stangir lausar. Veiðimenn eiga ýmsa kosti varðandi gistingu – bæði fullt fæði og einnig einfalt eða ekkert fæði.

Fyrir Jöklu II, þá seljum við staka daga í senn. Tímabilið í sölu er frá byrjun júlí og fram í miðjan ágúst. Stangardagurinn á kr. 15.000 – 35.000. Engin gistiskylda en nokkrir gistimöguleikar á svæðinu. Flottur kostur fyrir þá sem huga á ferðalög innanlands í sumar – stoppa og veiða í Jöklu í 1 -3 daga.

Hérna má finna  veiðileyfin í Jöklu.