Veiðitímabilið hófst 1. apríl, en samt er ekkert veiðilegt úti ennþá – en það mun fljótlega breytast því skv. veðurspánni þá mætir vorið til landsins, fimmtudaginn 9. apríl. Við vonum að það muni rætast. Síðari hluta apríl, þá eigum við nokkur laus holl á 2 af betri sjóbirtingssvæðum landsins, sem yfirleitt eiga sína bestu vordaga þegar líður á apríl og jafnvel inní maí.
Eldvatn í Meðallandi – Frá 12-30 apríl, þá eigum við nokkur laus holl og daga í Eldvatni. 6 stangir eru leyfðar í Eldvatn og fluga er eina leyfilega agnið. Veiðin í Eldvatni er oft best síðari hluta apríl. Framundan er því frábær tími á svæðinu.
Vatnamótin – Seldar eru 5 stangir saman á svæðið, 2 dagar í senn. Við eigum nokkur holl laus frá 13. apríl. Sjóbirtingurinn safnast saman á Vatnamótasvæðið þegar vorar og þar er hann oft lengst inní maí mánuð. Nú þegar vorið er á næsta leyti, þá er um að gera að skella sér austur í veiði. Við eigum einnig 2 holl laus í haust, í Vatnamótin.