Eldvatn í Meðallandi er ein albesta sjóbirtingsá landsins. Síðasta ár skilaði um 500 birtingum þar sem um 150 fiskar voru lengri en 70 cm langir og þrír þeirra stærstu voru 90, 93 og 95 cm langir. Veiðitímabilið er hafið fyrir austan og þrátt fyrir að það sé núna harður vetur á veiðislóð, þá hafa flottir fiskar komið á land.
Síðustu misseri hefur Eldvatnið verið mjög vel bókað, ekki síst frá hendi erlendra veiðimanna, en nú ber svo við að nokkur holl eru laus í Apríl.
7-9 apríl – lausar stangir 22.000 stangardagurinn
12-15 apríl – 6 stangir saman 396.000
18-21 apríl – 6 stangir saman 396.000
21-23 apríl – 6 stangir saman 264.000
26-28 apríl – 6 stangir saman 264.000
28-30 apríl – 6 stangir saman 264.000
30 apríl – 2 maí 6 stangir saman 264.000
5-7 maí – lausar stangir 22.000 stangardagurinn
10maí-26maí – Laus holl og stangir skv samkomulagi
Rúmgott veiðihús er við Eldvatnið með 8 svefnherbergjum , stór setustofa og eldhús þar sem rúmt er um menn. Kemur sér vel á þessum tímum þegar sóttvarnir eru efst í huga okkar.





