Inná veiða.is má núna finna laus holl í Straumfjarðará.

Straumfjarðará er gjöful laxveiðiá sem staðsett er í Eyja og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi og liggur þjóðvegurinn ( 54 Ólafsvíkurvegur ) yfir ána, rétt vestan við þjónustumiðstöðina við Vegamót. Laxgengur hluti árinnar er um 12 km og er það greið leið fyrir laxinn að ganga frá ósi og upp í efstu veiðistaði. Í Straumfjarðará er veitt með fjórum stöngum. Einungis er veitt með flugu. Við efri hluta árinnar er veiðihús þar sem full þjónusta er í boði á veiðitímanum og er veiðimönnum skylt að nýta þjónustuna.

Veiðitímabilið í Straumfjarðará hefst 20. júní og lýkur 12. september ár hvert. Auðvelt er að komast til flestra veiðistaðanna á fjórhjóladrifnum bílum (jeppum og jepplingum) og eru veiðistaðir í þægilegu göngufæri frá slóða. Þar sem aðgengi við veiðistaðina er gott hentar áin vel þeim sem vilja ekki eyða miklum tíma í langar keyrslur á milli veiðistaða og erfiðar göngur.

Hérna má finna laus holl í Straumfjarðará.