Veiðin í Ytri Rangá í sumar hefur verið góð og vaxandi alveg frá opnun. Fyrstu 2 vikurnar veiddust yfirleitt 18-25 laxar á dag en uppúr miðjum júlí fóru að sjást dagar sem skiluðu kringum 50 löxum. Í gær kom svo fyrsti dagurinn sem skilaði yfir 100 löxum þegar 108 laxar komu samtals á land á aðalsvæðinu + Borgarsvæðinu í Hólsá. Stórar smálaxagöngur hafa verið að skila sér uppí ána en einnig er að veiðast lúsugur 2ja ára lax. Flottur tími er efalaust framundan í Ytri Rangá.
Júlí, ágúst og September eru fullseldir í Ytri Rangá, utan 2ja stanga sem lausar eru í lok ágúst, 27-30. ágúst. Sjá má þær hérna.