Fréttatilkynning
Útboð
Veiðifélag Straumfjarðarár í Eyja og Miklaholtshreppi óskar hér með eftir tilboði í lax- og silungsveiði á starfssvæði félagsins fyrir árin 2018 til 2022 , að báðum árum meðtöldum, samkvæmt meðfylgjandi útboðsskilmálum og fyrirliggjandi upplýsingum.
Útboðsgögn eru hjá umsjónarmanni útboðsins Páli Ingólfssyni formanni stjórnar Veiðifélags Straumfjarðarár, sími; 893-1135 netfang [email protected] og verða þau afhent gegn 10.000.- skilagjaldi.
Frestur til að skila tilboði rennur út þann 25. október 2017 kl. 12:00. Tilboðum skal skila á Lögmannstofuna LOGOS Efstaleiti 5, 103 Reykjavík
Tilboðin verða opnuð þann dag kl. 16:00 í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska á Lögmannsstofunni LOGOS
Veiðifélag Straumfjarðarár 5. október 2017
Fh. stjórnar Páll Ingólfsson formaður