Sjóbirtingsveiðin hefur verið góð í haust. Mikið af birtingi hefur gengið uppí árnar á Suðurlandi, meira en oft áður að sögn ýmissa veiðimanna. Nú fer að halla undir lok tímabilsins, þó svo enn séu nokkrir dagar til stefnu.Við eigum örfáa lausa daga hérna á vefnum. Þar á meðal í Laxá og Brúará en þar hefur verið fín veiði í haust. Veitt er í 5 daga í viku hverri í Laxá og Brúará en svæðið er ávallt hvílt á mánudögum og þriðjudögum. Leyfilegt agn er fluga, maðkur og spúnn. Hérna má finna lausa daga.
Einnig eigum við eitt laust holl í Tungufljóti í Skaftártungu, einni mögnuðustu sjóbirtingsá landsins. Hérna má sjá það holl.