Frá 10. maí og til 10 júní höfum við selt leyfi inná Bíldsfellssvæðið í Soginu, þar sem veiðimenn hafa verið á eftir bleikjunni, urriðanum og birtingnum. Veiðin framan af maí var slunginn, enda oft mikið vatn í Soginu og tíðin risjótt. Núna er sumarið loksins komið og aðstæður orðnar viðráðanlegar. Nú er laxinn líka að þoka sér upp vatnakerfið í Soginu, eins og veiðimenn sem voru við ána á þriðjudaginn komust að.

Við fengum skýrslu frá José Alvarado sem var átti þriðjudaginn í Bíldsfellinu, ásamt félögum sínum. José þekkir Bíldsfellið ágætlega. Þeir félagar mættu um kl 10 um morguninn í ágætu veðri. Það tók þá svolítinn tíma að finna fiskinn en þegar það tókst, þá byrjaði gamanið. Staðirnir „Bæjarlækur“ og „vík“ voru aðal sögusviðið, en þeir fengu einnig fiska í Tóftinni og Kofastreng. Niðurstaða dagsins var 8 bleikjur,  flestar á milli 50-68cm langar, 2 smærri. Þeir náðu einnig 2 urriðum, 55 og 58 cm löngum. Flugur sem voru að gefa var Krókurinn, rauður blóðormur og síðan Squirmy.

Hápunktur dagsins hjá þeim félögum var síðan þegar einn þeirra setti í stærðar lax, líklega rétt undir 20 pundum – hann tók Krókinn nr. 16 með 5 punda taum – Fiskurinn átti þennan bardaga, enda gat einhenda fyrir línu 6 gert lítið. Fiskurinn tók á milli Efra Horns og Tóftarinnar. Frábær dagur hjá þeim félögum. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá deginum.

Laxinn er mættur í Sogið fyrir nokkru síðan. Við heyrðum af laxi strax um mánaðarmótin. Hann sást stökka neðst í Bíldsfellinu og svo missti einn veiðimaður lax uppá Ásgarðssvæðinu.

Það styttist í að laxveiðitímabilið hefjist með formlegum hætti í Soginu, en það er 20. júní. Hægt er að fá bæði staka daga á holl í bíldsfellinu í júní og síðan seljum við Alviðruna að öllu leyti í Stökum dögum.

Hérna má finna leyfi í Bíldsfellið

Hérna má finna leyfi í Alviðruna.