Veiðifélag Ytri Rangár hefur ákveðið að hætta samtarfi við Lax-á og leigja ána til norskra aðila til 3ja ára. Samstarf Lax-á og veiðifélagsins hefur varað í all nokkur ár og á þeim tíma hefur hróður Ytri Rangár vaxið mikið og óhætt er að segja að erlendis sé hún ein þekktasta á landsins. Ekki hafa fengist upplýsingar um með hvaða hætti nýjir leigutakar ætla að standa að sölu veiðileyfa hér innanlands eða hvort áin verði í grunninn eingöngu markaðssett fyrir erlenda veiðimenn, slíkt skýrist væntanlega innan skamms.
Það telst til töluverðra tíðinda þegar erlendir aðilar taka aflahæstu laxveiðiá landsins á leigu. Ýmsar smærri ár hafa til margra ára verið á forræði erlendra aðila en í dag má segja að Ytri Rangá sé ein af flaggskipum laxveiðinnar á Íslandi. Norska fyrirtækið sem tekur við Ytri heiti Heggöy Aktiv en það er s.s. ekki ókunnugt rekstri og markaðssetningu á laxveiðiá, því það hefur unnið að uppbyggingu laxveiðiá í Noregi, m.a. Lakselva. Leiguverð norsku aðilana á Ytri er um 5 m lægra en það var í ár.
Það verður forvitnilegt að sjá hvort að þetta sé bara eitt af fyrstu skrefunum í þeirri þróun að erlendir aðilar taki yfir íslenskar ár. Það er ljóst að þau félög sem hafa verið fremst í leigu lax- og silungsveiðiáa hér á landi síðustu ár, hafa ekki mikla burði í dag til að keppa við erlenda aðila.
Missir Lax-á er mikill en ólíklegt er að félagið hafi ráðgert að láta frá sér Ytri Rangá. Víðidalsá og Laugardalsá voru þegar farin úr flóru Lax-á og nú bætist Ytri Rangá í þann hóp. Líklegt er að þegar yfir lýkur þá yfirgefi eins og 1 til 2 ár í viðbót Lax-á.