Eins og við greindum frá í byrjun september þá fór Brynjudalsá í útboð í haust. Tilboð í ána voru opnuð þann 10. október en stjórn Veiðifélagsins lét þá lítið hafa eftir sér varðandi fjölda tilboða, upphæðir og annað. Nú hefur hinsvegar verið ákveðið að ganga til samninga við Hreggnasa og mun hann því leigja Brynjudalsá til næstu 4ra ára. Leiguverðið á ánni hækkar lítilega frá því sem það var á þessu ári. Mögulegt er að einhverjar breytingar verði á veiðifyrirkomulagi og öðru, en það skýrist væntanlega á næstu dögum.
Brynjudalsá er 2ja stanga á í Hvalfirði og því í næsta nágrenni við Laxá í Kjós sem Hreggnasi er einnig með á leigu. Á undanförnum árum hefur veiðin sveiflast frá 150 uppí 340 laxa á sumri í Brynjudalsá. Nú í sumar komu um 230 laxar á land.